Lögmaður verktakans sem var látinn fara frá framkvæmdum við Ölduselsskóla fyrirvaralaust, segir að engar viðhlítandi skýringar hafi fengist frá Reykjavíkurborg á því hvers vegna samningi var slitið. Verktakinn hafði nýverið ráðið inn tíu nýja starfsmenn vegna verkefnisins, sem nú hafa misst vinnuna.Reykjavíkurborg sleit samstarfi við verktaka í Ölduselsskóla á miðvikudag, sem hætti samdægurs og fjarlægði allan öryggisbúnað. Skólinn var lokaður í gær þar sem starfsfólk treysti sér ekki til að vinna við þær aðstæður sem sköpuðust og fimm hundruð börn sátu heima.Verktakinn, HH Hús, íhugar að leita réttar síns og krefjast skaðabóta.Elimar Hauksson, lögmaður HH Húss, segist engar viðhlítandi skýringar hafa fengið á verkslitunum.„Við höfum ekki fengið skýringar eða svör eða rökstuðning eða neitt