Herir Ísraels og Bandaríkjanna hófu loftárásir á Íran rétt um klukkan sex í morgun að íslenskum tíma. Árásunum hefur aðallega verið beint að Tehran, höfuðborg landsins, en einnig á borgirnar Karaj, Kermanshah, Qom og Isfahan.Stjórnvöld í Íran hafa skotið flugskeytum að Ísrael og bandarískum herstöðvum í nágrannaríkjunum. Fyrstu árásunum var beint að heimili Ayatollah Ali Khameini, æðsta klerks Íran. Ekki er vitað hvort hann var staddur á heimili sínu þegar árásirnar voru gerðar.Seinni árásum var beint að hernaðarmannvirkjum, byggingu leyniþjónustunnar, kjarnorkustofnun Írans og á ráðuneyti. ÍRANAR SVÖRUÐU MEÐ ÁRÁSUM Stuttu eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árásirnar heyrðust sprengingar í Norður-Ísrael þar sem eldflaugar Íran voru skotnar niður. Engar fregnir hafa borist af mannfalli