Donald Trump forseti Bandaríkjanna gaf út forsetatilskipun 1. maí. Hún fjallaði um fjármögnun NPR og PBS sem hafa verið skilgreindir sem almannaþjónustumiðlar í Bandaríkjunum. Þar var meðal annars rætt um að fjölmiðlalandslagið hefði breyst mjög frá því núverandi fyrirkomulag fjármögnunar var tekið upp árið 1967. Þá var komið á fót stofnuninni Corporation for Public Broadcasting, skammstöfuð CPR, en í gegnum hana hafa fjármunir verið veittir til útvarpsstöðvarinnar NPR og sjónvarpsstöðvarinnar PBS, sem hafa undir sínum hatti fjölda staðbundinna stöðva um öll Bandaríkin.Í tilskipuninni segir Trump að síðan þá sé kominn fram fjöldi sjálfstæðra fjölmiðla sem séu frumkvöðlar á sínu sviði. Fjármögnun af hálfu ríkisins sé ekki aðeins úrelt heldur spilli fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Og síðan s