Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, settur rektor Háskólans á Bifröst, þáði samkvæmt gögnum sem Heimildin hefur undir höndum 3,4 milljónir í verktakagreiðslur frá háskólanum í gegnum eignarhaldsfélag sitt Lausnastein ehf. fyrir kennslu árið 2023 þegar hún var deildarforseti félagsvísindadeildar. Ólína segir við Heimildina að greiðslurnar hafi hún fengið vegna kennslu veturinn 2022-23 sem hún hafði skuldbundið sig í áður en hún varð...