Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íslenskar sjónvarpsþáttaraðir keppast um fjármögnun á Seríes Mania

Tvær íslenskar þáttaraðir sem eru í bígerð verða kynntar fyrir mögulegum fjárfestum á frönsku sjónvarpsþáttahátíðinni Séries Mania í mars. Aðeins fimmtán verkefni sem sækjast eftir fjármögnun eru vanalega til kynningar undir dagskrárliðnum Co-Pro Pitching Sessions.Aðstandendur þess verkefnis sem hlýtur mesta hylli dómara fær 50 þúsund evrur að verðlaunum. Það samsvarar rúmum 7 milljónum íslenskra króna en ætla má að eftirsóttara sé að landa samningi um fjármögnun á hátíðinni en að hneppa verðlaunin.Íslenska sjónvarpsþáttaröðin Stella Blómkvist var á sínum tíma kynnt á Séries Mania-hátíðinni. Þáttaraðirnar tvær sem kynntar verða í mars byggja á íslenskum glæpasögum líkt og Stella Blómkvist. BÁRUST 400 UMSÓKNIR FRÁ 65 LÖNDUM Séries Mania-hátíðin er haldin í Lille í Frakklandi á ári hverju
Íslenskar sjónvarpsþáttaraðir keppast um fjármögnun á Seríes Mania

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta