Með nýjum lögum í Austurríki er ætlunin að berjast gegn því sem á ensku er kallað „shrinkflation“ – eða vöruskerðing. Það er þegar framleiðendur minnka vöru en selja hana á sama verði eða jafnvel á hærra verði en áður.Frá og með 1. apríl þarf að merkja vörur sérstaklega í 60 daga ef þær hafa verið minnkaðar en verðið ekki lækkað að sama skapi. Viðurlög eru sektir að upphæð sem jafngildir allt að tveimur milljónum íslenskra króna.Í sumum verslunum er þegar byrjað að merkja vörur sem framleiðendur hafa minnkað en eru samt seldar á sama verði og áður.