Reykjavíkurborg sleit samningi við verktaka sem vann að framkvæmdum í Ölduselsskóla fyrirvaralaust á miðvikudag. Skólinn var lokaður í dag þar sem starfsfólk treysti sér ekki til að vinna við þær aðstæður sem sköpuðust og fimm hundruð börn sátu heima. Borgin hefur þegar samið við nýjan verktaka um að ljúka verkinu.Lögmaður HH Húss verktaka segir að verkslit Reykjavíkurborgar hafi komið gjörsamlega að ófyrirsynju. Þegar litið sé til fundargerða um verkefnið verði ekki séð að það verði réttlætt með neinum hætti að slíta samstarfi án lögmætrar ástæðu og víkja þeim af verkstað. Þetta muni óhjákvæmilega tefja verklok. Verktakinn hyggist leita réttar síns og krefjast skaðabóta. SAMNINGI SLITIÐ Í VIÐURVIST STARFSFÓLKS SKÓLANS Eftir að mygla fannst í skólanum í fyrravor var ráðist í miklar fram