Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segist ekki hafa haft neina hugmynd um glæpi kynferðisbrotamannsins og barnaníðingsins Jeffreys Epsteins. Hann ber vitni fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings um samband sitt við hann en vitnaleiðslan er fyrir luktum dyrum.Í yfirlýsingu sem hann las við upphaf vitnaleiðslunnar segist hann ekki hafa séð neitt rangt né gert neitt rangt. „Ég veit hvað ég gerði, og það sem er mikilvægara, ég veit hvað ég gerði ekki. Ég sá ekkert og gerði ekkert rangt.“Clinton átti í samskiptum við Epstein og flaug nokkrum sinnum með einkaflugvél hans eftir að hann lét af embætti sem forseti. Það var áður en Epstein var sakfelldur fyrir mansal og kynferðisbrot gegn stúlku undir lögaldri.Eiginkona Clinton, Hillary, bar vitni í gær. Hún sagðist aldrei ha