Kröfur í þrotabú flugfélagsins Play nema 21 milljarði króna. Ólíklegt er að nokkuð fáist upp í almennar kröfur.Fyrsti skiptafundur þrotabúsins var haldinn á Hilton hóteli í Reykjavík í dag. Fundinn sóttu fyrst og fremst lögmenn launafólks og veðhafa en þó mætti einn almennur kröfuhafi. Það var kona sem hafði keypt hópferð fyrir um 600 þúsund krónur en þar sem hún greiddi ekki með kreditkorti þurfti hún að lýsa kröfu í búið. Ólíklegt er að sú krafa verði samþykkt því Arnar Þór Stefánsson skiptastjóri segir ólíklegt að nokkuð fáist upp í almennar kröfur.Nokkur hundruð milljónir króna eru í búinu nú þegar og er það hlutverk skiptastjóra að hámarka eignir búsins svo hægt sé að greiða upp í kröfur. Nú þegar hafa launakröfur starfsfólks upp á 1,1 milljarð króna verið samþykktar, enda teljast lau