Streymisveitan Netflix hefur fallið frá tilboði sínu um kaup á kvikmynda- og sjónvarpsframleiðandanum Warner Bros. Discovery. Líklegt þykir að Paramount Skydance eignist fyrirtækið verði kaupin samþykkt af yfirvöldum.Samkvæmisleik Netflix og Paramount, um hvort þeirra kaupi Warner Bros. síðustu mánuði, virðist vera lokið. Netflix tilkynnti í gær að það ætlaði að falla frá tilboði sínu eftir að Paramount hækkaði sitt tilboð upp í 111 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 13.800 milljarða íslenskra króna.Warner Bros hafnaði yfirtökutilboði Paramount um miðjan desember og þótti þá líklegt að Netflix eignaðist fyrirtækið. Stjórnendur Netflix vildu hins vegar ekki jafna tilboð Paramount og sögðu að það væri ekki lengur fjárhagslega aðlaðandi að kaupa fyrirtækið á því verði, eins og þeir orðuðu