Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja og oddviti H-listans, Fyrir Heimaey, ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Þetta staðfestir Íris í samtali við fréttastofu.Íris segist þó ekki ætla í prófkjör fyrir flokkinn í vor, en framboðsfrestur hjá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum rann út klukkan sex í kvöld.Félagsfundur Fyrir Heimaey var haldinn í hádeginu, þar sem ákveðið var að félagið bjóði ekki aftur fram.Fyrir Heimaey varð til sem klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum fyrir bæjarstjórnarkosningar 2018. Sjálfstæðisflokkurinn hafði fengið 73% atkvæða í kosningum 2014 en missti meirihluta sinn þegar hið nýja framboð fékk þrjá af sjö fulltrúum í bæjarstjórn. Síðan þá hafa Fyrir Heimaey og Eyjalistinn verið saman í meirihluta í bæjarstjórn í tvö kjörtímabil.En er búið að semja við
Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta