Seðlabankinn óttast að frumvarp félagsmálaráðherra um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu veiki afkomu ríkissjóðs dragi úr hvata til atvinnuþátttöku og skapi óróa á vinnumarkaði.Þetta kemur fram í minnisblaði Seðlabankans sem sent var velferðarnefnd Alþingis í dag.Deilt hefur verið um frumvarpið á þingi en það er nú á borði velferðarnefndar á milli annarrar og þriðju umræðu. Bætur almannatrygginga breytast í samræmi við fjárlög og skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.Frumvarpið sem deilt er um gerir hins vegar ráð fyrir að greiðslur almannatrygginga taki mið af þróun launavísitölu, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Um þessa breytingu segir Seðlabankinn: „Í núgildand