Stjórn Rósarinnar, félags innan Samfylkingarinnar, hefur lokið viðræðum við stjórnmálaaflið Vinstrið um mögulegt samstarf vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Niðurstaðan er að Rósin mun fylkja sér áfram að baki Samfylkingunni, fremur en að ganga til liðs við Vinstrið. Aðdragandi viðræðnanna var ósætti meðlima Rósarinnar, og formanns hennar, Guðmundar Inga Þóroddssonar, með að hann hlyti ekki sæti ofarlega á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í...