Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bill Clinton spurður út í tengsl sín við Epstein

Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ber vitni fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings um samband sitt við kynferðisbrotamanninn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Hann ber vitni fyrir luktum dyrum í Chappaqua í New York-ríki . Þetta er í fyrsta skipti sem fyrrverandi forseti ber vitni fyrir þingnefnd síðan Gerald Ford gerði það árið 1983. Eiginkona Clinton, Hillary, bar vitni í gær. Hún sagðist aldrei hafa hitt Epstein og sagði eiginmann sinn ekki hafa vitað af glæpum hans. Clinton-hjónin hafa ítrekað kallað eftir því að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði látinn bera vitni um kynni sín af Epstein.Fjölmiðlar og öryggisgæsla fyrir utan dómshúsið í Chappaqua í dag.EPA / OLGA FEDOROVA
Bill Clinton spurður út í tengsl sín við Epstein

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta