Sunna Margrét gaf út fyrstu stuttskífu sína árið 2020 og fjórum árum síðar gaf hún út plötu í fullri lengd. Sunna er búsett í Sviss og hefur verið þar í rúm tíu ár. Upphaflega lék hún tónlistina sína einsömul en fann svo hljómsveit til þess að spila með úti í Sviss.Fern by Sunna MargrétÞegar leið á kom hún meira heim til Íslands til þess að spila og verkefnin hennar voru meira unnin hér á landi. Henni fannst hún finna sig meira í tónlistarsenunni hér á landi. „Maður verður svo aktívur með vinum sínum,“ segir Sunna. Hún ákvað að heyra í vinkonu sinni Sigurlaugu Thorarenssen, eða Sillu, fyrst til þess að stofna hljómsveit á Íslandi og svo bættist við trommuleikarinn Sólrún Mjöll Kjartansdóttir.Hljómsveitin lauk nýverið tónleikaferðalagi í Bretlandi þar sem þær spiluðu á þrennum tónleikum. Áð