Orkusalan vill stækka Lagarfossvirkjun í Lagarfljóti í annað sinn, nú með nýju stöðvarhúsi á norðurbakkanum. Í Lagarfossi fellur vatnið 17 metra og mikið vatn rennur óvirkjað um flóðgáttir.„Þetta eru 60-70 rúmmetrar á sekúndu að jafnaði sem renna fram hjá virkjuninni þó að hún hafi verið stækkuð mjög mikið fyrir 20 árum þegar Kárahnjúkavatnið bættist við. Það er sem sagt enn þá heilmikið vatn að flæða fram hjá virkjuninni sem að nýtist ekki,“ segir Andri Teitsson, framkvæmdastjóri orkuvinnslu og þróunar hjá Orkusölunni.Rennslið í Lagarfljóti er þó sveiflukennt og óvíst að nýja túrbínan myndi alltaf snúast. Jafnvel yrði minna framleitt í kulda, fyrstu mánuði ársins.„Engu að síður þá sýnist okkur að það gæti verið fýsilegt að bæta við svona 7-10 megavatta vél sem gæti verið að framleiða kann