Bandaríski trúðurinn Eric Broomfield, sem kallar sig Jelly Boy the Clown og býr á Íslandi, var handtekinn um borð í flugvél Icelandair í Keflavík á leið til Bandaríkjanna á þriðjudag. Ástæðan var rafmagnstæki, sem hann notar í sýningum sínum, sem lögreglan taldi vera heimagerða sprengju. Þeir hafi yfirheyrt hann og svo látið dúsa í fangaklefa í fimm klukkutíma. Hann hefur ferðast um allan heim með tækið og aldrei áður lent í öðru eins.