Eldur kviknaði í bíl við heimili í Eyjafjarðarsveit eftir hádegi og var bæði lögregla og slökkvilið kallað á staðinn. Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir lítinn eld hafa verið eftir í bifreiðinni þegar viðbragðsaðilar mættu á staðinn og þá gekk vel að slökkva það sem eftir var.Íbúar óttuðust um tíma að eldurinn myndi berast í hlöðu, en svo varð ekki og hvorki menn né dýr í hættu vegna eldsins. Ekki er vitað hvað olli brunanum en lögregla rannsakar nú eldsupptök.Slökkvilið Akureyrar fór á vettvang og slökkvistörf gengu fljótt og vel.RÚV / Kristófer Óli Birkisson