Samfylkingin fengi mest fylgi ef kosið yrði til borgarstjórnar nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Fylgi hennar og Sjálfstæðisflokksins minnkar milli kannana meðan fylgi Miðflokksins er enn á uppleið.42,0 prósent myndu kjósa flokkana sem mynda meirihluta í borgarstjórn. 41,3 prósent myndu kjósa flokkana sem eru í minnihluta í borgarstjórn og 16,5 prósent myndu kjósa flokka sem eiga ekki sæti í borgarstjórn.24,0 prósent segjast myndu kjósa Samfylkinguna, 2,1 prósentustigi minna en í síðasta mánuði. Sjálfstæðisflokkurinn fengi atkvæði 22,7 prósenta, 1,7 prósentustigum minna en í janúar. Viðreisn missir um eitt prósentustig milli mánaða, 13,5 prósent myndu kjósa flokkinn nú. Miðflokkurinn bætir við sig einu prósentustigi og fengi 11,1 prósent.Vinstrið, sameiginlegt framboð Vinstri grænn