Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samfylkingin með 30% og Miðflokkurinn með 20%

Samfylkingin mælist sem fyrr með mest fylgi allra flokka og Miðflokkurinn er næststærstur samkvæmt nýrri skoðanakönnun Prósents.Samfylkingin fengi 30,1 prósent atkvæða ef kosið væri nú, samkvæmt könnuninni en mældist með 32,0 prósent í síðustu könnun Prósents í október. Miðflokkurinn hefur verið í mikilli sókn síðustu mánuði og segjast nú 19,6 prósent myndu kjósa hann en 9,9 prósent lýstu því yfir í októberkönnuninni.Sjálfstæðisflokkurinn (13,7 prósent) og Viðreisn (13,5 prósent) njóta svo að segja jafn mikils fylgis. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 18,3 prósent í október og Viðreisn með 14,4 prósent.Aðrir flokkar eru allir undir tíu prósentum. 7,7 prósent myndu segjast myndu kjósa Flokk fólksins og 5,9 prósent Framsóknarflokkinn. Aðrir flokkar næðu ekki inn á þing. Það eru Píratar (3,6
Samfylkingin með 30% og Miðflokkurinn með 20%

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta