Millilandaflug um Keflavíkurflugvöll er á áætlun í morgun, eftir mikla röskun í gær sökum óveðurs.Beina þurfti fimmtán farþegaþotum Icelandair á varaflugvelli í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum síðdegis í gær eftir að skyndilegur stormur skall á við Keflavíkurflugvöll.Ástandið hafði áhrif á um tvö þúsund farþega. Áhafnir fjögurra véla sem lentu á Akureyrarflugvelli runnu út á tíma og urðu nýjar áhafnir að fljúga norður og svo til Keflavíkur með farþega, sem margir hverjir þurftu að bíða í vélunum í fleiri klukkustundir.Flugvélar Icelandair sem þurftu að lenda á Akureyrarflugvelli í gær vegna veðurskilyrða á Keflavíkurflugvelli.RÚV / Kristófer Óli Birkisson