„Lífið of stutt til að sleppa því óþægilega,“ segir tónlistarkonan og Eurovision-farinn Diljá Pétursdóttir sem er mætt með endurkomu inn í tónlistarsenuna. Hún ræddi við blaðamann um árin eftir Eurovision, tónlistina, sköpunargleðina, ástina og lífið og frumsýnir hér tónlistarmyndband.