Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Búið að opna Holtavörðuheiði en Fjarðarheiði lokuð fram eftir morgni

Talsverðar raskanir hafa orðið á umferð vegna vetrarveðurs. Í byrjun dags eru nokkrir vegir enn lokaðir en unnið er að því að opna þá.Holtavörðuheiðin var opnuð rétt fyrir klukkan átta í morgun. Hún hafði verið lokuð vegna óveðurs og fólki beint um hjáleið um Brattabrekku og Laxárdalsheiði. Fróðárheiði hefur einnig verið opnuð en þar er snjóþekja.Þungfært er í Ísafjarðardjúpi og þæfingur um Hálfdán. Vegurinn um Kleifaheiði er lokaður og gæti tekið smá tíma að opna vegna bíls sem þverar veginn.Fjarðarheiði er lokuð og verða gefnar út nýjar upplýsingar klukkan tíu um stöðuna þar. Fært er orðið um Vatnsskarð eystra en ófært er um Öxl og Breiðdalsheiði. Flughált er á Fagradal og hálka víðar á Austurlandi.Nýjustu upplýsingar um færð á vegum má nálgast á umferðarvef Vegagerðarinnar.Fréttin hefur
Búið að opna Holtavörðuheiði en Fjarðarheiði lokuð fram eftir morgni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta