Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ í færeysku úrvalsdeildinni og fyrrum landsliðsþjálfari í knattspyrnu, segir það fáránlega nálgun að tala um fáránlega nálgun í íslensku íþróttastarfi.Hann bendir á að Íslendingar hafi meðal annars notið góðs árangurs í fótbolta.Erlingur Jóhannsson, prófessor í Íþrótta- og heilsufræði, sagði fyrr í vikunni að það væri fáránleg nálgun í íslensku íþróttastarfi að byggja fjáröflun íþróttafélaga á því að láta mjög ung börn keppa í fótbolta.Sigurður Ragnar var gestur Morgunútvarps Rásar tvö í morgun. EIGUM AÐ LÆRA AF ÖÐRUM EN ERUM AÐ GERA MARGT VEL Sigurður Ragnar segir það mikilvægt að vera opin fyrir bætingum í íslensku íþróttastarfi. Hann segir Knattspyrnusamband Íslands hafa menntað þjálfara í 23 ár og mikil framför hafi orðið í aðstæðum iðkenda.„M