Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gerir ráð fyrir að verða varaborgarfulltrúi

Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir að verða varaborgarfulltrúi á næsta kjörtímabili. Rætt hefur verið um að fæstir núverandi borgarfulltrúar fái öruggt sæti á lista. Friðjón staðfestir þetta fyrir sitt leyti í færslu á Facebook. Þar segist hann hafa viljað vera aftarlega á lista, í kringum baráttusæti. „ Það eru allar líkur á að ég verði varaborgarfulltrúi á næsta kjörtímabili og afar litlar líkur á að ég verði borgarfulltrúi, sætið mitt verður baráttusæti í umhverfi sem við höfum ekki séð enn.“Friðjón R. Friðjónsson.RÚV
Gerir ráð fyrir að verða varaborgarfulltrúi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta