Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir piltar dæmdir fyrir líkamsárás

Tveir piltar voru í fyrradag sakfelldir fyrir sérlega hættulega líkamsárás á Akranesi 2023. Þeir voru dæmdir fyrir að veitast að pilti, henda honum í götuna og sparka ítrekað í höfuð hans og líkama þar sem hann lá á götunni. Piltarnir voru dæmdir í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Annar þeirra var að verða sextán ára og hinn á sautjánda ári þegar þeir réðust á piltinn. Dómari tók tillit til ungs aldurs piltanna við ákvörðun refsingar en einnig að árásin hefði verið skipulögð fyrir fram. Hann sagði árásina með öllu tilefnislausa, hrottafengna og unna af piltunum í sameiningu.Frá Akranesi.RUV / Einar Rafnsson
Tveir piltar dæmdir fyrir líkamsárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta