Íbúar á vestanverðu landinu mega búast við éljum í dag og á Norðausturlandi snjóar framan af en léttir síðan til. Vestan til á landinu gæti veður truflað umferð og eru vegfarendur því hvattir til að kanna aðstæður áður en þeir leggja af stað.Veðurspáin er svohljóðandi:Vestan og suðvestan átta til fimmtán með éljum um landið vestanvert. Snjókoma norðaustanlands í fyrstu, en léttir síðan til á Norðaustur- og Austurlandi. Hvessir um tíma á Norðausturlandi í kvöld. Frost að tólf stigum, kaldast í innsveitum norðaustantil.Hægari á morgun og mun minni él, en þykknar upp suðaustantil með snjókomu þar seint annað kvöld. Áfram kalt í veðri.