Götumynd frá Kyiv, höfuðborg Úkraínu.RUV/Björn MalmquistAlþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur samþykkt lán upp á 8,1 milljarð dollara til Úkraínu. Alls fær Úkraína 1,5 milljarð af láninu strax en restin verður greidd út á næstu fjórum árum. Láninu er ætlað að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og tryggja greiðslur fyrir opinberum útgjöldum landsins.Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Kristalina Georgieva, segir að hægt sé að aðlaga lánaáætlunina ef friðarviðræður bera árangur.Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá.