Búvörusamningar eru gerðir milli íslenska ríkisins og Bændasamtaka Íslands. Samningarnir eru gerðir til tíu ára í senn en eru endurskoðaðir tvisvar á gildistíma þar sem litið er til þess hvort markmið samninganna hafi náðst og hvort nauðsynlegt sé að gera breytingar.Í rammasamningi er fjallað um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins en síðan eru sérstakir samningar um nautgriparækt, sauðfjárrækt og garðyrkju. Stjórnvöld hafa lagt til að framlengja samningana um ár.„Til að gefa okkur betri tíma til að fara ofan í saumana á þessu og vinna í þeim málum sem við teljum að hafi breyst á undanförnum áratug og þurfi núna að mæta, það er breyttur tíðarandi, við viljum leggja meiri áherslu á atriði eins og nýsköpun og kynslóðaskipti, fjölbreyttari starfsgreinar innan landbúnaðarins og svona mætti len