Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vopnaður maður handtekinn fyrir utan næturklúbb

Vopnaður karlmaður var handtekinn fyrir utan næturklúbb í Tøyen í Osló í nótt. Lögreglan fékk tilkynningu um læti og hugsanlega ógn fyrir utan næturklúbbinn fyrr í kvöld. Þegar lögregla kom á vettvang handtók hún nokkra menn og við handtökuna fannst byssa á einum mannanna.Ekki liggur fyrir hvort einhverjum hafi stafað ógn af mönnunum eða hvað mönnunum gekk til en norska lögreglan rannsakar málið. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá.
Vopnaður maður handtekinn fyrir utan næturklúbb

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta