Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fljúga frá Akureyri með nýjar áhafnir

Flugvél með nýjar áhafnir lenti á Akureyrarflugvelli rétt í þessu. Þetta segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.Fjórar flugvélar Icelandair þurftu í dag að lenda á Akureyri vegna slæmra veðurskilyrða við Keflavíkurflugvöll. Áhafnir flugvélanna runnu út á tíma og þurfti því að senda nýjar áhafnir norður svo hægt væri að fljúga vélunum til Keflavíkur.Flugvélarnar lentu á Akureyri í kringum hálf fimm í dag en farþegum var ekki hleypt út fyrr en um níu. Þeir þurftu því að dvelja um borð í vélunum í um fjórar klukkustundir.Að sögn Guðna geta flugvélarnar brátt flogið til Keflavíkur, ein af annarri, með nýjum áhöfnum. Flugvélarnar þarf að afísa og það gæti liðið um hálftími á milli brottfara vélanna fjögurra.Flugvélarnar tvær sem lentu á Reykjavíkurflugvelli tóku á loft til Keflav
Fljúga frá Akureyri með nýjar áhafnir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta