Lið Verzlunarskóla Íslands sigraði lið Menntaskólans að Laugarvatni í átta liða úrslitum Gettu betur í kvöld. Liðið var í keppnisham og sigraði með 38 stigum gegn 11.Lið Verzlunarskólans skipupu þau Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann.Menntaskólinn að Laugarvatni komst í fyrsta skipti áfram í sjónvarpsviðureign síðan 1997. Lið skólans skipuðu Þórey Kristín Rúnarsdóttir, Stefán Gunngeir Stefánsson og Allan Holm Rúnarsson.Viðureignin í kvöld var fyrsta sjónvarpsviðureignin af fjórum, í átta liða úrslitum keppninnar. Hér fyrir neðan má sjá þær viðureignir sem eru framundan. VIÐUREIGNIR FRAMUNDAN * 5. mars * Menntaskólinn á Egilsstöðum - Borgarholtsskóli * 12. mars * Menntaskólinn í Reykjavík - Menntaskólinn við Hamrahlíð * 19.