Framkvæmdastjórn ESB samþykkti í dag tillögu sem gerir aðildarríkjum kleift að nota sjóði sambandsins til þess að greiða fyrir aðgengi að öruggu þungunarrofi.Markmið frumkvæðisins er að auðvelda konum í ríkjum þar sem aðgangur að þungunarrofi er takmarkaður að sækja sér þjónustu annars staðar innan ESB. KEMUR Í KJÖLFAR ÁKALLS UM BREYTINGAR Ákvörðunin kemur í kjölfar undirskriftasöfnunar þar sem yfir ein milljón manna innan sambandsins kallaði eftir bættum aðgangi að þungunarrofi. Henni fylgja þó engar breytingar a landslögum aðildarríkja.Þeir hópar sem að söfnuninni stóðu vildu að sett yrði á laggirnar sérstakt fjármögnunarkerfi til að styðja konur sem þurfa að sækja þjónustu til annarra ríkja en framkvæmdastjórnin taldi ekki þörf á nýjum sjóði.Þess í stað geta aðildarríki nú notað fjár