Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

2.000 farþegar sátu fastir á þriðju klukkustund

Um 2.0000 millilandafarþegar sátu veðurtepptir inni í flugvélum á Reykjavíkurflugvelli, Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli í dag.Þangað hafa þó nokkrar flugvélar Icelandair þurft að hverfa vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli.Sumir farþegar voru fastir á þriðju klukkustund. Þrjár flugvélar hafa nú hleypt farþegum út á Reykjavíkurflugvelli, í þeim voru farþegar frá Shengen-svæðinu. Tvær flugvélar sem ekki komu frá Shengen-svæðinu snúa nú aftur til Keflavíkur.Þetta staðfestir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, við fréttastofu.Guðni segir tafir vegna veðurskilyrða í dag hafa áhrif á ríflega eitt þúsund farþega sem bókað eigi flug til Norður-Ameríku í dag. Hann hvetur farþega til að fylgjast grannt með framvindu mála og mögulegum breytingum á flugáætlun.
2.000 farþegar sátu fastir á þriðju klukkustund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta