Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Regína skipar sjöunda sæti Samfylkingar

Regína Ásvaldsdóttir, sem lýsti því nýlega yfir að hún hyrfi úr stóli bæjarstjóra Mosfellsbæjar, mun skipa 7. sætið á framboðslista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Þetta segir í tilkynningu sem Samfylkingin gaf út rétt í þessu.Efstu sex sætin lágu fyrir eftir prófkjör í lok síðasta mánaðar. Þau skipa: 1. Pétur H. Marteinsson 2. Heiða Björg Hilmisdóttir 3. Steinunn Gyðju- og Guðjónsdóttir 4. Skúli Helgason 5. Stein Olav Romslo 6. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Næstu sæti eru samkvæmt tilkynningunni þannig skipuð:7. Regína Ásvaldsdóttir8. Birkir Ingibjartsson9. Isabel Alejandra Diaz10. Sara Björg SigurðardóttirFréttin var uppfærð eftir að tilkynning barst frá Samfylkingunni.
Regína skipar sjöunda sæti Samfylkingar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta