75 óskilorðsbundnar fangelsisrefsingar fyrndust í fyrra og 98 árið þar á undan. Vel á áttunda hundrað bíða nú refsivistar. Fangelsin eru yfirfull, segir forstjóri Fangelsismálastofnunar. 84% þeirra sem hófu gæsluvarðhald í fyrra voru erlendir ríkisborgarar. HAFA LÍTIL SEM ENGIN TENGSL VIÐ ÍSLAND Erlendum ríkisborgurum sem hlotið hafa refsidóm hér landi hefur fjölgað verulega undanfarin ár. Í mörgum tilfellum er um ræða fólk með lítil eða engin tengsl við Ísland. Þetta skýrist mestmegins af tvennu. Í fyrsta lagi hefur fjöldi útlendinga sem koma til landsins margfaldast á síðustu árum og svo hefur löggæsla og eftirlit á landamærunum verið eflt.Hlutfall útlendinga sem hefja gæsluvarðhald hér á landi hefur að sama skapi hækkað hratt á síðustu árum.Útlendingar hafa verið í miklum meirihluta