Ársverðbólga í febrúar mældist 5,2 prósent og stóð í stað frá fyrri mánuði. Hagfræðingur segist sjá merki kyrrstöðuverðbólgu í hagkerfinu og reiknar með auknu atvinnuleysi næstu mánuðina.Þriðja mánuðinn í röð mælist verðbólga töluvert yfir væntingum. Eftir að verðbólga náði hámarki í ársbyrjun 2023 hjaðnaði hún hratt en frá því í fyrravor hefur reynst ómögulegt að koma henni nærri verðbólgumarkmiði Seðlabankans sem er 2,5 prósent. Í raun hefur það markmið fjarlægst síðustu mánuði.Samkvæmt Hagstofunni er árstíðabundið atvinnuleysi 7,3 prósent og eykst nokkuð hratt, en taka skal fram að Hagstofan mælir alla jafna meira atvinnuleysi en Vinnumálastofnun.Þegar verðbólga mælist mikil, atvinnuleysi sömuleiðis og hagvöxtur er lítill er talað um kyrrstöðuverðbólgu. Allt þetta á við um íslenska hagk