Beina þurfti þó nokkrum þotum Icelandair á varaflugvelli í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum eftir að skyndilegur stormur skall á við Keflavíkurflugvöll. Í kvöldfréttum sjáum við myndir frá Reykjavíkur- og Akureyrarflugvelli og ræðum meðal annars við formann öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna um ástandið sem skapaðist.