Hillary Clinton fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú í yfirheyrslu hjá Bandaríkjaþingi vegna Epstein-skjalanna. Yfirheyrslan fer fram fyrir lokuðum dyrum þrátt fyrir að Clinton hafi beðið um að hún yrði fyrir opnum tjöldum. Upptaka af yfirheyrslunni verður svo birt að henni lokinni.Í ræðu sem hún hélt áður en yfirheyrslurnar hófust sakaði hún eftirlitsnefnd þingsins um að kalla hana til yfirheyrslu til að beina athyglinni frá Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Nefndin eigi að vita að hún viti ekkert sem geti hjálpað til við rannsóknina. ÆTTU AÐ SPYRJA TRUMP „Ef nefndinni er alvara með að fá fram sannleikann um glæpi Epsteins ætti hún að spyrja Trump eiðsvarinn um þá tugi þúsunda skipta sem nafn hans kemur fram í Epstein-skjölunum,“ sagði hún. Aðrir Demókratar hafa tekið un