Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Grindvíkingar ráða skólastjóra til að stýra samreknum leik- og grunnskóla

Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á fundi í dag að ráða skólastjóra sem komi til með að stýra samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík. Markmiðið með ráðningunni er að tryggja að hægt verði að bjóða upp á skólastarf í bænum næsta haust, að því gefnu að eftirspurn og aðstæður leyfi.Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Grindavíkurbæjar.Þá kemur fram að niðurstöður úr nýlegri forskráningu foreldra sýni að hluti barnafjölskyldna sem áttu lögheimili í bænum fyrir rýmingu vilji snúa aftur heim. Bæjarstjórn telji mikilvægt að mæta því ákalli með markvissum undirbúningi. Slíkt auki fyrirsjáanleika fyrir fjölskyldur sem þurfi að skipuleggja næsta vetur. RÁÐNING TRYGGI AÐ NÆSTA BÆJARSTJÓRN HAFI RAUNVERULEGT VAL UM SKÓLAHALD Sveitarstjórnarkosningar fara fram í vor og mun þá ný bæjarstjórn
Grindvíkingar ráða skólastjóra til að stýra samreknum leik- og grunnskóla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta