Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fallið frá byggingu unglingaskóla við Skautahöllina

Borgarráð samþykkti í dag að falla frá fyrirætlunum um að byggður verði nýr unglingaskóli aftan við Skautahöllina í Laugardal.Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að finna eigi annan stað fyrir skólann. Það verði gert í samráði við hagsmunahópa í Laugardal um staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja á svæðinu. FYRRI ÁKVARÐANIR EKKI Á TRAUSTUM GRUNNI BYGGÐAR Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði tillöguna fram í morgun. Hún sagði það liggja fyrir að fyrri ákvarðanir hafi ekki verið nægilega vel ígrundaðar og því þurfi að vinna málið betur í samkomulagi við þá hópa sem málið varði.„Með uppbyggingu unglingaskóla í Laugardal verður til menntastofnun sem verður áhrifavaldur í lífi ungmenna í hverfinu í marga áratugi og setur mark sitt á allt annað skólastarf í Laugardalnum. Slík framk
Fallið frá byggingu unglingaskóla við Skautahöllina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta