Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hagnaður Brims og Iceland Seafood jókst milli ára

Sjávarútvegsfyrirtækin Brim og Iceland Seafood nutu bæði meiri hagnaðar á liðnu ári en árið á undan. Þau gáfu út ársuppgjör í dag.Rekstrartekjur Brims í fyrra voru 59,3 milljarðar króna, sem er rúmlega 5% meira en árið 2024. Rekstrartekjur Iceland Seafood voru 70,1 milljarður króna, 9% meira en árið á undan. VEIÐIGJALDAÓLGA HAFÐI LÍTIL ÁHRIF Á BRIM Brim hagnaðist um 8,7 milljarða króna og segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri fyrirtækisins, í tilkynningu að rekstur hafi gengið vel. Ólga sem hverfðist um veiðigjöldin og önnur mál er varða sjávarútveg á vettvangi stjórnmálanna hafi haft lítil áhrif á rekstur Brims.Iceland Seafood hagnaðist um 1,1 milljarð, samanborið við 402 milljónir árið 2024. Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri Iceland Seafood, segir 2025 hafa verið öflugt rekstrarár.
Hagnaður Brims og Iceland Seafood jókst milli ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta