Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Má ekki skilgreina AfD sem öfgasamtök

Þýsku leyniþjónustunni er ekki heimilt að skilgreina hægri flokkinn Alternativ für Deutschland (AfD) sem hægri sinnuð öfgasamtök að sinni. Héraðsdómstóll í Köln felldi þennan úrskurð í dag.Leyniþjónustan setti þessa skilgreiningu á flokkinn vegna athafna sem hún taldi ógna lýðræði í landinu. Skilgreiningin veitir leyniþjónustunni víðtækari heimildir til eftirlits og væri vatn á myllu andstæðinga sem berjast fyrir því að starfsemi flokksins sé bönnuð. VISS ÓGN EN BRJÓTA EKKI GEGN STJÓRNARSKRÁ Dómstóllinn féllst á að innan flokksins væri ýmislegt í gangi sem gæti talist ógn við lýðræði. Nefndi hann sem dæmi ýmsar kröfur, meðal annars að banna múslimum að biðja opinberlega og bera höfuðslæður í opinberum stofnunum, sem og að banna byggingu múslimskra bænaturna. Hins vegar hefði flokkurinn
Má ekki skilgreina AfD sem öfgasamtök

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta