Tveir verða fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann eftir umferðarslys á Suðurlandi á þriðja tímanum í dag. Smárúta og fólksbíll rákust saman á gatnamótum Biskupstungnabrautar og Laugarvatnsvegar.Lögreglan á Suðurlandi segir alls tíu hafa verið í bílunum. Átta voru fluttir til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Upplýsingar um líðan fólksins liggja ekki fyrir.Hópslysaáætlun var virkjuð. Lögregla fór á staðinn, ásamt sjúkrabílum og slökkviliði. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út.Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrri mynd gaf ekki rétta staðsetningu.