Lögreglan á Norðurlandi eystra lagði nýlega hald á tæp 60 kíló af fíkniefni sem kallast Kratom. Efnið, sem er ekki vel þekkt á Íslandi fannst í tveimur aðskildum málum í sendingum frá Hollandi samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Það hefur ekki fundist áður hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, en í litlu magni hjá öðrum embættum.Efnið átti að fara til viðtakanda á Norðurlandi en fer nú til rannsóknar á höfuðborgarsvæðinu.Í tilkynningu lögreglu á Facebook segir að virka efnið í Kratom sé mítragýnin. Það hafi bæði örvandi áhrif en jafnframt deyfandi í stærri skömmtum. „Kratom duft er grænt að lit og líkist grænu te og fæðubótarefni. Kratom kemur frá plöntunni Mitragyna speciosa sem á uppruna sinn í Suðaustur-Asíu.“Lögreglan segir Kratom ólöglegt hér á landi. Fólk er varað við notkun efnisins e