Þremur þotum Icelandair í millilandaflugi verður eða hefur verið lent á Reykjavíkurflugvelli í dag vegna erfiðra veðurskilyrða á Keflavíkurflugvelli. Vegna snjós og vinds tekur lengri tíma fyrir flugvélar að lenda á Keflavíkurflugvelli. Töluverður fjöldi flugvéla er í einskonar bið og flýgur yfir Suðurlandið á meðan flugstjóri bíður leyfis til að lenda.