Að minnsta kosti tveir eru slasaðir eftir að tíu manns lentu í umferðarslysi á Biskupstungnabraut á Suðurlandi eftir hádegi í dag, þegar árekstur varð milli smárútu og fólksbíls. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á vettvangi og hópslysaáætlun hefur verið virkjuð.