Almannavarnir virkjuðu hópslysaáætlun vegna umferðarslyss á Suðurlandi um klukkan hálf þrjú í dag. Smárúta og fólksbíll rákust saman á gatnamótum Biskupstungnabrautar og Laugarvatnsvegar, segir Lögreglan á SuðurlandiEkki er ljóst hve margir voru um borð. Nokkrir eru slasaðir en ekki er vitað hve margir eða hve alvarlega.Lögregla er komin á staðinn, ásamt sjúkrabílum og slökkviliði. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út.Fréttin verður uppfærð.