Af 2.453 börnum sem eru á biðlista eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna hafa 1.900 beðið lengur en þrjá mánuði. Umboðsmaður barna segir gögn ekki benda til þess að almennt fjölgi á biðlistum en að bið hafi lengst. Biðlistar segi þar að auki ekki alla söguna því sums staðar er allt að þriggja ára bið eftir að komast á biðlista.„Við erum þeirrar skoðunar að það þurfi auðvitað að ráðast til atlögu við þessa löngu bið barna sem við sjáum svo víða,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna.„Það sem stendur upp úr almennt er alltaf að það eru of mörg börn að bíða og þau eru að bíða of lengi. Þetta er það sem við höfum séð allan þann tíma frá því að við byrjuðum að safna þessum tölum.“Umboðsmaður barna birti gögn um bið barna eftir þjónustu í febrúar. Börnum á biðlista Geðheilsumiðstöðvar fækk