Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann réttmætan eiganda bifreiðar af gerðinni Willys Jeep, sem var fyrst skráð árið 1946, þar sem hann hefur haft umráð yfir bifreiðinni síðastliðin fjörutíu ár. Skráður eigandi bifreiðarinnar taldi að sá sem seldi manninum bifreiðina hefði ekki verið eigandi hennar. Dómurinn taldi öll skilyrði hefðar uppfyllt í málinu og því kæmi ekki til álita hvort upphaflegur seljandi hefði gerst sekur um kaupfox.